Algengar spurningar
HVERS VEGNA ERUÐ ÞIÐ MEÐ SVONA UNG BÖRN Í TÓNAGULLI?
Rannsóknir sýna að ungabörn eru miklar vitsmunaverur sem drekka í sig allt sem fram fer í umhverfi þeirra. Máltaka hefst löngu áður en börn byrja að tala og sömuleiðis aðlagast börn tónlist sinnar menningar ótrúlega snemma. Reynslan sýnir að tónlist höfðar gríðarlega sterkt til barna. Í gegn um tónlist gefast tækifæri til að örva þroska barna á mörgum sviðum. Tónlistariðkun í hóp er einstök upplifun fyrir barn sem er að uppgötva umhverfið og læra á veröldina í kring um sig. Í Tónagulli er markvisst unnið með tónlist með aðferðum sem eru við hæfi þessa unga aldurs.
HVENÆR ER BEST AÐ BYRJA?
Best er að byrja ekki seinna en um 8-10 mánaða aldurinn en flest börn eru mjög tilbúin um 5-6 mánaða. Yngri börn (2-4 mánaða) njóta þess mjög að taka þátt í tímum, eða um leið og þau geta haldið sér vakandi nógu lengi.
HVAÐ ER GERT Í TÍMUM?
Tímarnir eru fjölbreyttir og fylgja alltaf ákveðinni röð atburða til þess að börnin læri hvað kemur næst. Í upphafi er alltaf byrjað með söng sem býður alla velkomna með nafni og í lokin er sunginn kveðjusöngur Tónagulls. Þar á milli er unnið með puttaþulur, kroppaþulur, kjöltuleiki, söngdansa, barrokkdans, hringdansa, eggjahristur, litríkar slæður, trommur og barnahljóðfæri.
MEGA SYSTKINI KOMA MEÐ?
Já systkini eru velkomin með í Tónagulls tíma.
ER Í LAGI AÐ BÁÐIR FORELDRAR KOMI MEÐ Í TÍMA?
Já báðir foreldrar eru velkomnir. Eins eru amma eða afi velkomin ef þau vilja koma með, en best er að ekki séu fleiri en tveir fullorðnir í einu með hverju barni
Like this:
Be the first to like this page.