Íslenskar rannsóknir sem tengjast Tónagulli og þátttakendum í Tónagullsnámskeiðum hafa verið birtar í erlendum tímaritum og kynntar á ráðstefnum bæði hér á landi og erlendis
Árið 2010 kom út grein í tímaritinu Music Education Resarch sem ber titilinn: Parent-infant music courses in Iceland, perceived benefits, and mental wellbeing of mothers
Höfundar: Helga Rut Guðmundsdóttir og Dóra Guðrún Guðmundsdóttir
Smellið á myndina til vinstri til að lesa greininaSnemma árs 2011 tóku 30 ungbörn þátt í rannsókn ásamt foreldrum sínum með því að koma í 10 skipti í Tónagulls tíma sem voru teknir upp á myndband frá þremur sjónarhornum. Fyrstu niðurstöður voru kynntar á ráðstefnu Society for Music Perception and Cognition í Rochester, NY, í ágúst 2011. Höfundur: Helga Rut Guðmundsdóttir
Smellið á myndina til að skoða veggspjaldið sem kynnt var á ráðstefnunni
Hér er veggspjald sem lýsir rannsókn sem gerð var meðal mæðra sem tóku þátt í námskeiðum á vegum Tónagulls. Annars vegar voru það ungar mæður sem fengu ókeypis námskeið með börnunum sínum í Hinu Húsinu og hins vegar mæður sem komu í hefðbundin námskeið í Tónagulli. Höfundur: Helga Rut Guðmundsdóttir.

